Greiningarstofa nýsköpunar

Analysis institute of Innovation

Greiningarstofa nýsköpunar er sjálfstæð þekkingar- og rannsóknareining sem sérhæfir sig í greiningu, mati og stefnumótun á sviði nýsköpunar, rannsókna, atvinnuþróunar og hæfniuppbyggingar. Stofan vinnur náið með fyrirtækjum, opinberum aðilum, háskólum og alþjóðlegum samstarfsaðilum að því að skapa þekkingu sem styður upplýsta ákvarðanatöku og sjálfbæra þróun.

Með rannsóknum, gagnaúrvinnslu og stefnumótandi greiningum stuðlar Greiningarstofa nýsköpunar að auknum skilningi á áhrifum nýsköpunar á samfélag og atvinnulíf. Stofan leggur sérstaka áherslu á alþjóðlegt samstarf, þátttöku í evrópskum verkefnum og miðlun þekkingar milli landa, með það að markmiði að efla nýsköpun, samkeppnishæfni og verðmætasköpun.

Með því að tengja saman rannsóknir, reynslu og alþjóðleg tengsl vinnur Greiningarstofa nýsköpunar að þróun lausna sem styrkja einstaklinga, stofnanir og samfélög í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi.

Bibliometrics

Upplýsingar um birtingar á ritrýndum greinum og tilvitnanir í þær samkvæmt heimildum OECD og ESB

OECD; Science and bibliometric indicators

OECD; Data Explorer

ESB; EU publications

ESB; Elevier Scopus

ESB; Clarivate Web of Science

Fjármögnun

Erasmus+ á Íslandi fjármagnar margskonar verkefni.

Tölfræði

Upplýsingar um tölfræði rannsókna og þróunar er að finna á vef OECD, Hagstofu Íslands og Eurostat.

Hagstofa Íslands; Rannsóknir og þróun 

Eurostat; Database

Eurostat; Research and development expenditure by sector of performance

OECD; Research and Development Statistics (RDS) Data

Meðal viðfangsefna Greiningarstofu nýsköpunar er að vinna að rannsóknum, greiningu, mati og stefnumótun á sviði nýsköpunar, rannsókna, færni – og atvinnuþróunar. Stofan aflar gagna og framkvæmir greiningar á þeim þáttum sem hafa áhrif á færni, atvinnuþátttöku og framtíðartækifæri ungs fólks, með sérstakri áherslu á að greina og miðla árangursríkum aðferðum sem styðja við inngöngu þess á vinnumarkað. Jafnframt leggur stofan áherslu á alþjóðlegt samstarf og þátttöku í evrópskum verkefnum til að skapa nýja þekkingu og styðja við upplýsta ákvarðanatöku sem eflir samkeppnishæfni, sjálfbærni og samfélagsleg verðmæti.

© Copyright - Right Now Group